HELGAFELL fasteignasala kynnir:
Hólagötu 35, 260 Reykjanesbæ:Fallega og vel skipulagða 95,2 fm fjögurra herbergja neðri sérhæð að Hólagötu 35, 260 Reykjanesbæ. Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottarhús/geymslu. Sér bílastæði eru fyrir framan eign.
BÚIÐ ER AÐ LAGFÆRA HÚSIÐ VERULEGA AÐ UTAN M.A. SETJA NÝTT JÁRN Á ÞAK OG SKIPTA UM RENNUR. GLUGGAR OG GLER VORU ENDURNÝJAÐIR NÝLEGA OG HÚSIÐ VAR HRAUNAÐ AÐ UTAN 2010.Bókið skoðun hjá: Hólmar Sigþórsson, s. 893 3276, holmar@helgafellfasteignasala.is.SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofa með fatahengi.
Gangur: Tengir saman öll rými hússins, með fatahengi.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með góðu skápaplássi og gaseldavél. Ljósgráar flísar á mill efri og neðri skápa.
Stofa: Björt stofa með nýjum
nýjum flísum á gólfi. Mögulegt er að stækka stofu, léttur veggur á milli herbergja.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott herbergi með fatahengi.
Herbergi 1: Rúmgott svefnherbergi,
nýjar flísar á gólfi.
Herbergi 2: Gott svefnherbergi með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu og baðkari. Búið er að setja
nýjar flísar í kringum baðkarið.
Þvottarými/geymsla: Þvottarými er inn af eldhúsi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur á vegg. Hægt að nýta sem geymslu að hluta.
Bílastæði: Sérbílastæði fyrir framan eignina.
Flísar á gólfum.GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA. ER Á FRÁBÆRUM STAÐ, STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU OG VERSLANIRFyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Hólmar Björn Sigþórsson, S: 89 33 276, holmar@HELGAFELLfasteignasala.is
Knútur Bjarnason, S: 77 55 800, knutur@HELGAFELLfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.000 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.