Faxabraut 3, 230 Reykjanesbæ:
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja efri sérhæð að Faxabraut 3 Reykjanesbæ. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 125,6 fm. þar af er íbúðarhluti 89,6 fm. og bílskúr 36 fm. Góð staðsetning, í göngufæri við verslunarkjarna, íþróttaaðstöðu, útivistarsvæði, framhalds-, grunn- og leikskóla.
Skipulag eignar:Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, bílskúr og sameiginlegt þvottahús.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected] Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofa með fataskáp og innfeldum fataskáp.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með góðri innréttingu, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, borðkrókur, flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð stofa með parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott herbergi, útgengi út á suður svalir, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með gamalli innréttingu, baðker, flísalagt í hólf og gólf.
Gangur/hol: Með innfeldum fataskáp, parket á gólfi. Í holi er lúga upp á rúmgott geymsluloft ofan við íbúðina.
Þvottahús: Á neðri hæð er sameignlegt þvottahús, stigi niður úr holi, tengi fyrir þvottavél, gönguhurð út á bílastæði framan við húsið, málað gólf.
Bílskúr: Bílskúr er hrörlegur og í slæmu ástandi. Vatn er í bílskúr.
Lóð: Gróin 603 fm. eignarlóð. Framan við húsið eru hellulögð bílastæði, tvö stæð fylgja hverri íbúð, steypt stétt að húsi.
Endurnýjað undanfarin ár:* Sett var ný klæðning á húsið 2015.
* Vatnslagnir endurnýjaðar 2020.
* Þak málað 2019.
* Nýtt parket á íbúð.
* Íbúðin er nýmáluð.
* Nýr gluggi í einu svefnherbergi.
GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA. ER Á GÓÐUM STAÐ, ÞAR SEM STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU OG VERSLANIR.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.