Heinaberg 20, 815 Þorlákshöfn:
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna vel skipulagt 5 herbergja einbýlishús með bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 174,6 fm. þ.a er íbúðahluti 133,8 fm. og bílskúr 40,6 fm. Eigni er vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttahús.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX.Skipulag eignar:Forstofa, stofu/borðstofa, sjónvarpskrókur, eldhús, svefnherbergisgangur, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum mahony fataskáp.
Stofa/borðstofa: Stór og björt stofa, parketi á gólfi, útgengi út á baklóð.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol, parket á gólfi.
Eldhús: Með góðri mahony innréttingu, rúmgóður borðkrókur, bakarofn, rafmagnshelluborð, flísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Með góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Inn af sjónvarpsholi er gott svefnherbergi með lausum fataskáp, dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með vask og veggskáp, baðker, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús/geymsla: Með góðri hvítri innréttingu, skolvask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, útgengi út á lóð, flísar á gólfi, lagnarými inn af þvottahúsi.
Bílskúr: Rúmgóður 40,6 fm. bílskúr, hiti, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, ómálað gólf.
Garður: Stór gróinn garður, að framan er steypt stétt að húsi og meðfram húsi að gönguhurð inn í þvottahús eru hellur, steypt innkeyrsla og á baklóð er hellulögð og steypt stétt.
Húsið: Var málað og gert við sprungur 2019. Gluggar á austurhlið hafa verið endurnýjaðir. Nýr forhitari fyrir ofna.
VEL STAÐSETT EIGN MIÐSVÆÐIS Í ÞORLÁKSHÖFN ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU, VERSLANIR, LEIKÖ OG GRUNNSKÓLA, SUNDLAUG OG ÍÞRÓTTAHÚS - EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum.
Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
Hvað segja íbúar? Smella hér.----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.