Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða efri sérhæð ásamt bílskúr í steinsteyptu tvíbýlishúsi, hannað af Kjartani Sveinssyni. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 187,8 fm. þ.a er íbúðahluti 142,2 fm. og bílskúr 45,6 fm. Eignin er einkar vel staðsett í grónu hverfi með stórum skjólgóðum garði.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected] Skipulag eignar:Forstofa, stofu/borðstofa, sjónvarpshol/setustofa, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, og bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð forstofa með hvítum fataskáp.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðri innréttingu, flísalagt.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa/borðstofa, aukin lofthæð, harðparket á gólfi.
Sjónvarpshol/setustofa: Rúmgóð með flísum á gólfi og fallegum arin.
Hjónaherbergi: Með hvítum fataskápum, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi með harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi með harðparket á gólfi.
Hol/gangur: Með flísum á gólfi, úr holi er stigi niður í bílskúr.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum, falleg hvít innrétting, upphengt salerni, baðker og gert er ráð fyrir sturtu, tengi fyrir handklæðaofn, spegill með ljósi.
Búið er að endurnýja baðherbergið.Gestasalerni: Inn af forstofu er flísalögð gestasnyrting sem þarfnast endurbóta.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús.
Bílskúrinn: Á neðri hæð er rúmgóður 45,6 fm. bílskúr sem, hita og rafmagn, heitt og kalt vatn, gönguhurð út í innkeyrslu, bílskúrshurðaopnari, flísar á gólfi.
Lóð: Stór 895 fm. sameiginleg gróin lóð, innkeyrsla er hellulögð, gengið er upp steyptar tröðður að útihurð, steyptur verönd á austur og suðurhlið.
Húsið hefur verið endurnýjað nokkuð undanfarin ár m.a. :* Baðherbergi endurnýjað.
* Gólfefni endurnýjuð í flestum rýmum á efri hæð, að undanskildu þvottahúsi og baðherbergi.
* Innihurðar endurnýjaðar, að undanskildu þvottahúsi og baðherbergi.
* Kaldavatns- og hitalagnir í eldhúsi, þvottahúsi og baði hafa verið endurnýjaðar.
* Þrír gluggar hafa verið endurnýjaðir.
* Handklæðaofn fyrir baðherbergi fylgir með.
* Strimlagluggatjöld í stofu sem fylgja með.
* Nýlegur þakkantur.
* Nýtt þakjárn, kjölur og þakpappi fylgja með.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected] EINSTAKLEGA FALLEG EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA.Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.