*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***
*** NÝTT ENDARAÐHÚS MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR - EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR Á BYGGINGARSTIGI 5 ***
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna vel skipulagt og fallegt 4-5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Birt heildarstærð eignar er 134,2 fm. og þar af er 43,4 fm. innbyggður bílskúr. Húsið er hluti af Katlahrauni 7-11 sem eru þrjú raðhús sem staðsett eru í glænýju hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. Stutt er í alla helstu þjónustu skóla, og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.
Eignin skilast tilbúin til innréttingar samkvæmt byggingarstigi 5 og að auki er búið að sparsla og grunna alla innveggi. Möguleiki er á að fá húsið lengra komið eftir samkomulagi.
Verð á byggingarstigi 5 - tilbúið til innréttingar: 59.9 milljónir.
Verð á byggingarstigi 7 - fullgerð bygging: 73.9 milljónir.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri, 3 svefnherbergi, stofa með útgengi út í garð og eldhús í opnu alrými, baðherbergi, þvottahús, bílskúr (innangengt úr þvottahúsi) og
geymsla í bílskúr með glugga og hurð sem mögulegt er að nota sem svefnherbergi.Frágangur utanhúss:Útveggir: Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með hvítri liggjandi álbáru.
Þak: Á þaki er svart bárujárn. Þakkantar eru frágengnir og lagt fyrir útiljósum. Vindskeiðar verða komnar og fúavarðar. Þakrennur og niðurföll verða frágengin
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir verða fullfrágengin og glerjað. Gluggar eru úr timbri og eru álklæddir. Málmaksturshurð er í bílskúrnum.
Aðgengi og lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð. Ruslaskýli eru frágengin.
Frágangur innanhúss:
Gólf: Gólfplata verður flotdregin (ekki flotuð).
Veggir og loft: Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft niðurtekin. Allir milliveggir verða komnir og brunaveggur milli húss og bílskúrs. Innveggir eru tvöfaldur klæddir með gifsplötum. Loft klædd með gifsplötum. Innveggir eru sparslaðir og grunnaðir.
Innihurðir: Engar innihurðar eru komnar í húsið.
Hitalögn: Ísteyptar hitalagnir verða í öllum gólfum og verður tengigrind fyrir gólfhita frágengin. Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Rafmagn: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni. Rafmagnstaflan er frágengin miða við byggingarstig 5.
Annað: Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótamat.
Byggingaraðili: SÁ hús ehf.
Athugið að meðfylgjandi innimyndir eru úr Katlahrauni 7 sem er samskonar eign.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, í s.
893 3276 eða í netfangið
[email protected] Ragnheiður Árnadóttir, í námi til löggildingar, í síma
697-6288 eða
[email protected]Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum.
Slagorð Sveitarfélagsins Ölfus er "Hamingjan er hér".
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.