Opið hús: 28. janúar 2023 kl. 15:15 til 15:45.Opið hús: Oddabraut 12, 815 Þorlákshöfn. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. janúar 2023 milli kl. 15:15 og kl. 15:45.
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu einstaklega glæsilegt og mikið endurnýjað 195 fm. einbýlishús á 3 hæðum. Búið er að stækka húsið með því að byggja nýtt 4 fm. anddyri sem ekki er inn í heildafermetrafjölda. Falleg gróin lóð með heitum potti og 15 fm. garðhýsi. Einstaklega vel staðsett hús í hjarta Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, grunn- og leikskóla og íþróttamiðstöð og sundlaug. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, 2 stofur / borðstofur, gangur á miðhæð og í risi, 4 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, geymslu og 15 fm. garðhús.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXLýsing eignar:
Miðhæð:
Anddyri: Búið er að stækka anndyri með viðbyggingu (bíslag). Komið er inn í flísalagða forstofu með innfeldum hvítum fataskápum, hiti í gólfi í viðbyggingu.
Gangur: Úr forstofu er gengið inn í parketlagðan gang.
Stofur / borðstofur: Tvær rúmgóðar stofur, parket á gólfi.
Eldhús: Með fallegri innréttingu frá Fagus, bakaraofn, háfur, spanhelluborð, borðplata úr granít, flísar milli skápa, borðkrókur með glervegg milli stofu og eldhúss, flísar á gólfi.
Gestasnyrting: Með fallegri grárri innréttingu, granít borðplata, sturta, upphengt salerni með granítplötu á klósettkassa, gólfhiti, flísalagt í hólf og gólf.
Ris:Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með innfeldum hvítum fataskápum, gönguhurð út á suður svalir, granít sólbekkir í gluggum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi með hvítum fataskáp, granít sólbekkur í gluggum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi, granít sólbekkur í gluggum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með fallegri hvítri innréttingu, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, Grohe blöndunartæki, bluetooth vifta, gólfhiti, flísalagt í hólf og gólf.
Endurnýjað að mestu. Gangur: Parket á gólfi.
Geymsla: Ofan súðar er geymsluloft.
Kjallari:
Geymsla: Rúmgott geymslurými, hvít innrétting með skolvask, hillur, gönguhurð út á baklóð, epoxy lakk á gólfi.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, skolvaskur, ofn, pottastýring, flísar á gólfi.
Lóð: Lóðin er einstaklega glæsileg. Framan við húsið gróinn lóð með hellulagðri stétt, framan við anddyri er hellulagður pallur með skjólvegg. Á baklóð nýlega hellulögð verönd, heitur pottur með sólpall og skjólveggjum, led lýsing fyrir ofan pottinn, malarlögð innkeyrsla, 15 fm. garðhýsi með 20 fm sólpall, rafmagn og ofn eru í garðhýsinu og búið að tengja fyrir rafhleðslustöð (rafhleðslustöð fylgir ekki með).
Búið er að lagfæra og endurnýja eignina mikið að innan sem utan undanfarin ár m.a:
Ytra byrði:* Nýtt anddyri með steyptum veggjum og sérsmíðuðum gluggum, nýjar rennur.
* Hús hefur verið filterað að utan og gert við austurgafl sem er ekki heilfilteraður.
* Hús málað að utan og gluggar lakkaðir.
* Gler endurnýjað í flestum gluggum.
* Nýr þakkantur með lofttúðum á milli.
Bakgarðurinn:* Skipt um klóakrör og allt sett í plast, nýr brunnur.
* Rakadúkur settur baka til meðfram húsinu.
* Ný hellulögð verönd á baklóð (gert af fagmanni), skipt um jarðveg undir hellum með fram húsinu, nýtt niðurfall úti.
* Nýr heitur pottur frá Trefjum með góðum stýringum, LED lýsingu fyrir ofan pott og pallur smíðaður í kringum pott.
* Garðveggir reistir sem skilja að göngustíg og baklóð.
* Nýtt 15 fermetra garðhús og sólpallur smíðaður í kring, rafmagn og rafmagnsofn í húsinu.
* Búið að græja tengingar fyrir hleðslustöð (hleðslustöð fylgir ekki með).
* Skipt hefur verið um jarðveg í innkeyrslu.
* Garður tekinn í gegn síðastliði sumar af skrúðgarðyrkjufræðing, ný tré og runnar keyptir í garðinn.
* Nýtt steypt svalargólf.
Anddyri: Hiti í gólfi, anddyri flísalagt, skápar lakkaðir hvítir, nýtt gler og nýjir slökkvarar.
Stofa / gangur: Stafaparket slípað upp og lakkað af fagmönnum (Ingo.ehf), nýjir slökkvarar í stofu, sólbekkir lakkaðir, skipt um hurð á gangi.
Eldhús: Ný LED ljós í eldhúsinnréttingu, granítborðplötur, innfellt
spanhelluborð, rúður filmaðar.
Gestasnyrting: Gólfflísar teknar upp og steypt nýtt gólf, niðurfall endurnýjað og hiti settur í gólf, gólfflísar endurnýjaðar, ný Grohe sturta og blöndunartæki, granít borðplata á vaskborði og klósettkassa, nýbúið er að filma gler í sturtu, ný innrétting.
Svefnherbergi / gangur: Nýtt parket, ný hurð og gluggar í hjónaherbergi, nýjar hurðar á allri efri hæð (Reykt eik), granít sólbekkir í svefnherbergjum
. Baðherbergi: Endurnýjað að mestu þ.e. endurnýjaðar flísar á gólfi og veggjum, nýjar plast vatnslagnir, ný sturta, nýtt salerni, ný innrétting og vaskur
Kjallari / þvottahús: Stigi og gólf í kjallara nýlega lakkað með epoxi lakki (af fagmönnum), ný innrétting og hillur í þvottahúsi, lagnagrind endurnýjuð að mestu.
Hér er um að ræða einstaklega fallegt og mikið endurnýjað eldra einbýlishús miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, grunn- og leikskóla og íþróttamiðstöð og sundlaug. Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum.
Slagorð Sveitarfélagsins Ölfus er "Hamingjan er hér".----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.