Helgafell fasteignasala kynnir til sölu ALLA húseignina við Ármúla 42.Fínt og vel staðsett 2.354fm. verslunar-, skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði í góðum rekstri á 2.105fm lóð.Á lóðinni eru 3 matshlutar, tvö bakhús (mhl 01 og 04) sem hýsa smiðju og skemmu Glófaxa, og framhús (mhl 03) sem hýsir veitingastað, verslun og þjónustu á jarðhæð en skrifstofur á annarri, þriðju og fjórðu hæð.
Birt flatarmála matshluta 01 (Bygg.ár 1956) er 330 m2.
Birt flatarmál matshluta 03 (Bygg.ár 1974) er 1.781,1 m2.
Birt flatarmál matshluta 04 (Bygg.ár 1990) er 243 m2.
Húsnæðið er með fjórum fastanúmerum og skiptast þau svona:Fastanúmer Merking NotkunBirt stærð fm.201-5532 01 0101 Iðnaðar/skrifstofur 1.060,0
201-5534 03 0101 Verslunarhús 503,3
201-5536 03 0301 Skrifstofa 556,5
201-5538 03 0303 Skrifstofa 234,3
- Á fyrstu hæð hússins eru þrjú verslunarbil í útleigu.
- Á 2-4. hæð eru fullbúin skrifstofurými sem öll eru í útleigu - en þau skiptast í samtals sex rými, þrjú austan megin og þrjú vestan megin við stigagang og lyftu. Hvert rými er með góða salernisaðstöðu. Efsta hæðin með stórum svölum, þar sem hæðin er aðeins inndregin.
- Á baklóðinni er iðnaðarhúsnæði með fjórum stórum innkeyrsluhurðum ásamt góðri lofthæð.
Bílaplan bakvið hús er malbikað.
Nýleg rafmagnstafla er komin í húsið.
Nýlega var komið fyrir lyftu í húsinu.
Nánari upplýsingar veita:Rúnar Þór Árnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5805 /
[email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.