Andrésbrunnur 14 í Reykjavík. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með stórum suður-pall og stæði í bílageymsluÍbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu innan íbúðar sem búið er að breyta í herbergi, eldhús, stofu og borðstofu.Forstofa: Eikarparket á gólfi. Skápur og fatahengi.
Þvottahús: Inn af forstofu er flísalagt þvottahús með hillum og innréttingu ásamt góðri borðplötu.
Geymsla: Inn af þvottahúsi er flísalögð geymsla
sem hefur núna verið breytt í annað herbergi.Eldhús: Flísar á gólfi, falleg svört og hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa.
Stofa: Eikarparket á gólfi. Útgengt út á stóran afgirtan suðurpall úr stofunni.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu.
Bílageymsla: Innangengt er í góða þriggja bíla bílageymslu.
Hjónaherbergi: Eikarparket á gólfi og góður skápur.
Tvö barnaherbergi: Eikarparket á gólfi með skápum.
Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla og bílastæði í lokaðri þriggja bíla bílageymslu með þvottaaðstöðu.Íbúðin er útbúin fyrir fatlaða og er bílastæðið aðeins stærra en önnur stæði ásamt því að allar hurðir eru 90cm.Samantekt: fjögurra herbergja íbúð á vinsælum og barnvænum stað í Grafarholti, stutt í helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla og verslanir. Nýlega er búið að setja upp varmaskiptir í húsinu.
Engar samþykktar framkvæmdir hjá húsfélaginu.
Smelltu hér til að opna söluyfirlitFyrir nánari upplýsingar hafið samband við Helgafell fasteignasölu í síma 566 0000 eða hafið samband við:Rúnar Þór Árnason lgf., Sími 775 5805 /
[email protected]Steinn Andri Viðarsson, í námi til lögg. / Sími: 775 1477 /
[email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.