Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna fallegt og vel skipulagt 6 herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Eignin er samtals 187,5 fm. þar af er íbúðarhluti 135,5 fm. og bílskúr 52 fm. Umhverfis húsið er gróinn og fallegur garður með sólpall og hellulagðri innkeyrsla og verönd. Húsið er vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, sjónvarpshol, svefnherbergisgang, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXLýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð á tveimur pöllum, aukin lofthæð, flísar á gólfi.
Sjónvarpshol: Rúmgott, parket á gólfi. Sjónvarpsskenkur og skápur á vegg fylgja ekki með.
Eldhús: Með fallegri innréttingu frá Fagus, bakarofn, háfur, helluborð, borðkrókur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi / fataherbergi: Stórt hjónaherbergi, parket á gólfi. Inna af svefnherbergi er fataherbergi með miklu skápaplássi.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi.
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi.
Svefnherbergi 4: Gott parketlagt herbergi.
Baðherbergi: Endurnýjað 2022. Með nýrri baðherbergisinnréttingu, skáp, vask og blöndunartækjum, upphent salerni, handklæðaofn, sturta með innfelldum blöndunartækjum, spegill með baklýsingu og hita, gólfhiti, nýjar flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Þvottahús: Úr eldhúsinu er gengið inn þvottahús, stál vinnuborð og vaskur, hillur, flísar á gólfi, útgengt er úr þvottahúsinu út á baklóð.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með tveimur innkeyrsluhurðum, bílskúrshurðaopnari á annarri hurðinni, hvít innrétting, vaskur, heitt og kalt vatn, ómálað gólf.
Lóð: Gróin og fallega frágengin 871,6 fm. lóð. Framan við húsið er hellulögð innkeyrsla og verönd, sorptunnuskýli, steypt stétt að húsi og timbur sólpallur.
Staðsetning: Smellið hér.Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi í eigninni: * Baðherbergi endurnýjað 2022.
* Eignin máluð að innan 2022.
* Nýr ofn í þvottahúsi 2022.
* Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2021.
* Skipt um þakjárn og rennur 2015.
* Ný eldhúsinnrétting 2007.
* Nýlegar flísar og fataskápur í forstofu.
* Nýlegur forhitari á ofnum og neysluvatni.
* Skipt um glugga á suður og vesturhlið (plastgluggar).
Hér er um að ræða fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða [email protected]Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.