Helgafell fasteignasala ehf kynnir:
ATH. EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA BLÁENGI 5A
Nýtt parhús á fallegum stað í Ölfusi.
Húsið er 5 herbergja (4 svefnherbergi), 175,1 fm. þar af er bílskúr 37,8 fm.
Eignin skilast á byggingastigi 5 (skv. ÍS-51-2001 staðli).
Bláengi er innan við 2 kílómetra frá Hveragerði.
Í SAMRÁÐI VIÐ BYGGINGARAÐILA ER HÆGT AÐ FÁ EIGNINA AFHENTA STYTTRA, EÐA LENGRA KOMNA, EN SEM NEMUR BYGGINGASTIGI 5. Eignin skiptist í:- Forstofu
- Fjögur svefnherbergi
- Tvö baðherbergi
- Rúmgott þvottahús
- Eldhús opið við stofu
- Innbyggður 37,8 fm. bílskúr.
Fasteignin er á einni hæð. Húsið er timburhús á staðsteyptum sökkli.
Húsið hvílir á þjappaðri fyllingu. Botnplata er staðsteypt með innsteyptum gólfhitalögnum.
Lóð og bílaplan verða grófjöfnuð. Búið verður að ganga frá frárennslis og ídráttarlögnum að heitum potti á garðpalli.
Frágangur utanhúss: (sjá nánar í skilalýsingu)Útveggir: Timburgrind, klætt að utan með hvítri og grári ál báruklæðningu
Þak: Hefbundið kraftsperruþak með valma. Aluzink þakklæðning, þakrennur eru utanáliggjandi.
Gluggar og útihurðir: Gluggar og hurðir eru pvc frá Gluggavinum, hvítir að innan en dökkgráir að utan.
Bílskúrshurð er frá Héðins hurðum ásamt rafdrifnum bílskúrshurðaropnara.
Aðgengi og lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð.
Frágangur innanhúss: (sjá nánar í skilalýsingu)Gólf: Gólf eru afrétt
Veggir og loft: Veggir skilast með plötuklæðningu tilbúnir undir spörtlun og málun. Hurðargöt miðast við yfirfelldar hurðir.
Loft innan íbúða eru með tvöfaldri raflagnagrind, klædd með einföldu gifslagi.
Hitalögn: Botnplata með innsteyptum gólfhitalögnum, gólfhiti verður tengdur en án stýringa.
Rafmagn: Búið verður að leggja ídráttarrör og dósir í botnplötu auk milliveggja og draga fyrir vinnurafmagni. Aðaltafla verður komin en ófrágengin.
Annað:
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita og gatnagerðargjöld.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótamat (0,3%)
Byggingaraðili er Gunnar Albert Traustason húsasmíðameistari.Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / [email protected]
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / [email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.