Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna fallegt og vel skipulagt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með stórum bílskúr. Eignin er samtals 192,6 fm. þar af er íbúðarhluti 133,7 fm. og bílskúr 58,9 fm. Umhverfis húsið er gróinn og fallegur garður með sólpall framan við húsið og á baklóð, heitur pottur. Húsið er vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / dagstofa, svefnherbergisgang, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr/geymsla og garðhús.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXLýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Stofa / dagstofa: Rúmgóðar og bjartar stofur, parket á gólfi.
Á eldri teikningu er þetta rými teiknað sem herbergi. Eldhús: Rúmgott eldhús, hvít innrétting, helluborð, bakaraofn, vifta, borðkrókur, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt hjónaherbergi, góðir skápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi, skápar.
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi, hvítir innfelldir skápar.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu, baðker/sturta, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Úr eldhúsinu er gengið inn stórt þvottahús, hvít innrétting og skápar, vinnuborð, vaskur, flísar á gólfi, úr þvottahúsinu er gengið inn í tengigang inn í bílskúr. Úr tengigangi er hurð út í innkeyrslu og út í kalda geymslu á baklóð.
Bílskúr / geymsla: Bílskúrinn er 58,9 fm. og er byggður 1994, hvítar hillur, vaskur, heitt og kalt vatn, salerni, gönguhurð út á baklóð, málað gólf. Inn af bílskúr er geymsla, parket á gólfi. Bílskúrinn hefur verið stúkaður af og hluti hans notaður sem lítil íbúð.
Lóð: Gróin og fallega frágengin 741,7 fm. lóð. Framan við húsið er malbikuð innkeyrsla, steypt stétt að húsi, timbur sólpallur. Á baklóð er sólpallur með heitum potti.
Garðhús: Á baklóð er 9 fm. garðhýsi sem notað er sem geymsla. Hægt að nota sem gestahús.
Staðsetning: Smellið hér.Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi í eigninni: * 2021 Sprunguviðgerðir að utan og húsið málað.
* Þakjárn endurnýjað og vindskeiðar.
* 2020 Parket endurnýjað.
* 2020 Allt tréverk pússað upp og málað. Garðhýsi málað.
* Vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar.
* Hitalagnir hafa verið endurnýjaðar, ofnar endurnýjaðir.
* Frárennslislagnir endurnýjaðar út í brunn.
* Gluggar og gler hafa verið endurnýjaðir að undanskildum gluggum í eldhúsi og baðherbergi.
Hér er um að ræða fallega og vel viðhaldið hús. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða [email protected]
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.