Opið hús: 30. maí 2023 kl. 18:00 til 18:30.
Kristján og Knútur hjá Helgafell fasteignasölu kynna:
Þriggja - fjögurra herberbergja íbúð á fimmtu hæð í Álfheimum 28, 104 Reykjavík.
Birt flatarmál er 118,3 m², þar af er geymsla í kjallara 10,9 m².
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing:Opið anddyri með parketi og fatahengi.
Stór og björt stofa með parketi og aukinni lofthæð og góðu útsýni.
Útgengt á suðvestursvalir úr stofu og hjónaherbergi.
Tvö parketlögð svefnherbergi með góðum skápum. Auðvelt að bæta við þriðja herberginu á kostnað stofu.
Stórt parketlagt eldhús með eldri innréttingu og borðkrók. Flísar milli efri og neðri skápa. Gaseldavél, uppþvottavél og þvottavél í eldhúsi.
Uppþvottavél og þvottavél í eldhúsi fylgja með.
Flísalagt baðherbergi með baðkari.
Tvær geymslur eru innan íbúðar.
Góð bílastæði.
Í kjallara:Sérgeymsla - 10,9 m².
Sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Íbúðin er að miklu leiti með eldri innréttingum.
Ástandsskýrsla var unnin fyrir heildarhúsið Álfheima 26-30 og er í vinnslu að stofna nýtt húsfélag sem nær yfir heildarhúseignina.
Engar framkvæmdir hafa verið samþykktar en líklegt að það verði gert samhliða stofnun á nýju húsfélagi heildarhússins.Eignin er í útleigu, kaupendur geta yfirtekið leigusamning. Leigusamningur er uppsegjanlegur með 6 mánaða fyrirvara.
Frábær staðsetning við hliðina á útivistarparadísinni Laugardalnum. Fjölbreytt þjónustu og verslun allt í kring.
Líkamsræktarstöðin HreyfingTBR húsið er í göngufæri.
Leikskólar, grunnskóli (Langholtsskóli) og framhaldsskóli (Menntaskólinn við Sund) í göngufæri. Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / [email protected]
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / [email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.