Vefarastræti 22 270 Mosfellsbær
Vefarastræti 22 , 270 Mosfellsbær
65.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 86 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2017 56.230.000 57.650.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 86 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2017 56.230.000 57.650.000 0

Helgafell fasteignasala kynnir:
Vefarastræti 22, þriggja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu.
Birt stærð 86,4 fm., þar af er geymsla 7,6 fm.
Svalir með svalalokunum, stærð 8,1 fm.

 
Falleg nýleg þriggja herbergja íbúð á annari hæð í þriggja hæða lyftuhúsi, ásamt stæði í lokuðu snyrtilegu bílageymsluhúsi.  Sameign til fyrirmyndar.

Íbúðin: Tvö svefnherbergi með skápum. Eldhús með Bosh tækjum frá Smith og Norland, keramik helluborði og gufugleypi. Flísalagt baðherbergi með sturtu og upphengdu salerni. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi og pláss fyrir þurrkara.  Harðparket á gólfi en flísar á baði.
Björt stofa og borðstofa með útgengi á vestursvalir með miklu útsýni. Ál svalahandrið með gleri og búið er að setja upp svalalokanir. 
Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá Axis, lýsing frá Lumex.  Mikill metnaður einkennir alla hönnun og efnisval.

Húsið: Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak, þar sem arkitektahönnun fær að njóta sín til fulls. Innsteypt innfelld lýsing undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. 41 bílastæði utandyra, 35 stæði í bílageymsluhúsi. Rafmagnsopnanir í anddyrum, póstkassar og mynddyrasími. Teppa-, og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Hljóðplötur í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar. Ljósleiðaratenging komin inn í smáspennutöflu íbúðar. Góð lofthæð. Bílageymsluhús í sérflokki.

Rafmagnstengi við bílastæði, þar sem hægt er að setja bílhleðslustöð.

Umhverfið: Húsið er staðsett sunnan við fjallið Helgafell í Mosfellsbæ. Stendur neðarlega í nýjasta hverfi bæjarins með stórbrotnu útsýni.  Helgafellsskóli í göngufæri. Nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Stutt er í fallegar gönguleiðir.

Smelltu hér til að opna söluyfirlit

Fyrir nánari upplýsingar:
Skrifstofa Helgafells fasteignasölu s: 566 0000
Rúnar Þór Árnason s: 7755 805  /  [email protected]
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.