Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð og sérstæðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið samtals 120,1 fm. þ.a. er íbúðarhluti 91,9 fm. og bílskúr 28,2 fm. Íbúðin er staðsett í fjögurra íbúða fjölbýlishúsi sem staðsett er miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem örstutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttasvæði, verslanir og aðra þjónustu.
Skipulag eignar: Forstofa, borðstofa/stofa, 1-2 svefnherbergi (búið er að taka niður vegg svefnherbergis og opna inn í stofu), eldhús, baðherbergi, þvottahús/geymsla og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi.
Borðstofa/stofa: Björt stofa með parket á gólfi, útgengi út á suðvestur sólpall.
Eldhús: Með góðri hvítri innréttingu, góðum eldhústækjum, uppþvottavél fylgir með, rúmgóður borðkrókur, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fallegum eikarskápur frá Axis, flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Gott parketlagt svefnherbergi. Búið er að taka niður vegg og opna inn í stofu.
Hol: Rúmgott hol, parket á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, speglaskápur með ljósum, upphengt salerni, baðker, handklæðaofn, flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla: Tengi fyrir þvottavél, skolvaskur, hvítar hillur, flísar á gólfi. Góð geymsla með flísum á gólfi, hillur, gönguhurð er í geymsluna að utan við hliðina á anddyri en búið er að opna á milli þvottahúss og geymslu.
Bílskúr: Sérstæður 28, 2 fm. bílskúr, geymsluloft, innkeyrsluhurð, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, 3ja fasa rafmagn, málað gólf.
Lóð: Gróin lóð með suður sólpallur á bakhlið hússins, framan við anddyri er hellulagt, möl í innkeyrslu og bílastæðum.
Staðsetning: Smellið hér. Búið er að endurnýja:* 2013 Nýjar flísar á forstofu, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhúsi, þvottahúsi og geymslu.
* 2013 Nýtt upphengt salerni.
* 2014 Skipt um meginhluta alls glers í íbúðinni.
* 2017 Nýtt baðker.
* 2018 Klæðning sett í loft og veggi í bílskúr.
* 2020 Nýtt parket á stofu/borðstofu, svefnherbergi og holi.
* 2020 Sett geymsluloft í bílskúr.
Hér er um að ræða einstaklega áhugaverða og vel staðsetta eign miðsvæðis í Þorlákshöfn.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]. Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.