Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynnir í samstarfi við Byr fasteignasölu: HNJÚKAMÓA 10 ÍBÚÐ 104, Ölfusi. Ný fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð, góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn Ölfusi, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Ýtið hér fyrir staðsetningu.
Hafðu samband og bókaðu einkasýningu, sýni samdægurs: Hólmar Björn löggiltur fasteignasali s. 893 3276 eða á netfangið [email protected].
HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI - ÝTIÐ HÉR FYRIR UPPLÝSINGAR UM HLUTDEILDARLÁN
Í Móabyggð rís ný lágstemmd byggð tveggja hæða fjölbýlishúsa, allar íbúðir hafa sér inngang og sér bílastæði með möguleika á uppsetningu hleðslustöðva. 6-8 íbúðir eru í hverju húsi, sjá hér fleiri íbúðir sem við höfum til sölu í Móabyggð.
ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 15 júni 2023. Sér inngangur er í íbúðina.
ÍBÚÐ 104 NEÐRI HÆÐ.Íbúðin er 95,8 m², þar af geymsla 6,7 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ fullbúinni án megin gólfefna, SAMKVÆMT SKILALÝSINGU.MYNDIR Í AUGLÝSINGU ERU ÚR SÝNINGARÍBÚÐ AÐ HNJÚKAMÓA 12.
Ljósmyndir eru úr sambærilegri eign í sambærulegu húsi frá sama verktaka og eru því eingöngu til viðmiðunar.
Nánar um íbúð:
Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er út á sérnotareit frá stofu.
Eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu, Dusty grey melamine filma er á eldhúsinnréttingu á neðri skápum og háum skápum. Efri skápar í eldhúsi eru með dökkri viðarárferð. Skúffur með mjúklokun.
Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með innbyggða uppþvottavél og ísskáp + frysti, framhliðar fylgja.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi með HTH fataskáp yfir heilan vegg. Barnaherbergin eru bæði með fataskáp. Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar
Baðherbergi, flísalagt gólf, hluti veggja, sturtuhorn er flísalagt með 30x60 flísum. Vegghengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn. Innrétting fyrir þvottavélar er á baðherbergi.
Þvottahús er innan íbúðar, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar.
Sérgeymsla 6,7 m² er í sameiginlegu geymslurými á efri hæð hússins.
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggja úr hverju húsi að bílastæðum þess húss.
Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Loftræsting, öll rými íbúðar eru náttúrulega loftræst í gegnum glugga ásamt því að loft er tekið inn um tvo ferskloftsventla. Vélrænt útsog er á baðherbergi, eldhúsi og þvottahúsi.
Reykskynjarar og slökkvitæki fylgja öllum íbúðum.
Nánar um húsið: Hnjúkamói 10 er átta íbúða tvílyft hús. Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði.
Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru fjórar íbúðir og fjórar geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Tveir stigar liggja upp á efri hæð.
Móabyggð fyrsti áfangi, afmarkast af Hnjúkamóa í suðri, Klettamóa í norðri og Rásamóa í austri. Göturnar Hnjúkamói og Klettamói eru tengdar saman með vistgötum. Malbikuð bílastæði eru við Hnjúkamóa, Klettamóa, Rásamóa og í vistgötum. Auk þess eru gestastæði á svæðinu. Miðsvæðis milli bygginga er dvalarsvæði ætlað til útivistar og leiksvæði.
Tölvuteikningar eru eingöngu til viðmiðunar, en endurspegla ekki endilega endanlegt útlit eignarinnar.
Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar og litir í þeim eru eingöngu til hliðsjónar ekki er um endanlegt útlit að ræða. Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar. Allt myndefni birt með fyrirvara – byggingarnefndarteikningar gilda.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN Á SKOÐUN; HÓLMAR BJÖRN SIGÞÓRSSON LÖGGILTUR FASTEIGNASALI S. 893 3276 EÐA Á NETFANGIÐ [email protected]. ----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.