Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna 140 fm. einbýlishús með 4 svefnherbergjum og 90 fm. 8 hesta hesthús á 1,5 ha. jörð í eigu ríkisins á draumastað við Kvist á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði sem er aðeins í um klukkustundarakstursfjarlægð frá Reykjavík. Þakjárn og pappi á íbúðarhúsinu var endurnýjað fyrir u.þ.b. 5 árum. Eigninni fylgja réttindi fyrir talsverðu magni af heitu vatni, eða 2 sekl. Ljósleiðari er á staðnum og því góð internettenging.
ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUNNAR SV. FRIÐRIKSSON TIL AÐ BÓKA SKOÐUN Á EIGNINNI.Ýtið hér til þess að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa - rúmgóð - flísar á gólfi - góð innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa - rúmgóð og björt - harðparket á gólfi - útgengt á stóran pall með steyptum heitum potti.
Eldhús - endurnýjað undir lok árs 2021 - harðparket á gólfi - falleg stílhrein innrétting - Viroc borðplata á eyju - spanhelluborð með innbyggðri viftu - innbyggður ísskápur og frystiskápur - tveir ofnar í vinnuhæð - innbyggð uppþvottavél.
Hjónaherbergi 1 - harðparket á gólfi - fataskápur.
Herbergi 2 - beykiparket á gólfi - fataskápur.
Herbergi 3 - beykiparket á gólfi - fataskápur.
Herbergi 4 - beykiparket á gólfi.
Baðherbergi - endurnýjað fyrir u.þ.b. 8 árum - flísar á gólfi og veggjum - upphengt salerni - baðkar með sturtuaðstöðu - falleg innrétting - handklæðaofn.
Geymsluloft - yfir öllu húsinu.
Garður - fallegur garður - heitur pottur - sólpallar.
Hesthús - skráð sem pökkunarhús fyrir grænmeti - nýtt sem hesthús undanfarin ár - góðar stíur.
Á Kleppjárnreykjum er lítil verslun, sundlaug, íþróttahús, tvær líkamsræktarstöðvar, leiksskóli með leikvelli og grunnskóli fyrir nemendur frá 1. – 10. bekk. Á skólalóðinni eru leiktæki og leikvellir sem íbúar geta nýtt sér.
Stutt er í verslanir og afþreyingau af ýmsu tagi og er mikið um náttúruperlur í nágrenninu. Má þar t.d. nefna Krauma, Húsafell, Hvalfjörðinn, Glym, Hvanneyri, Skorradalinn, Baulu, Grábrók og Paradísarlaut.
Mikil er um fallegar reiðleiðir, hjólaleiðir og gaman er að hjóla hringinn í Borgarfirðinum sem er 75 km eða á alla fallegu náttúruperlurnar í kring.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 842 2217 / [email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.