Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna fallegt og vel skipulagt 4. herbergja miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 211,3 fm. þar af er íbúðarhluti 162,1 fm. og bílskúr 49,2 fm. Umhverfis húsið er gróinn garður með suðvestur sólpall með heitum potti. Húsið er einstaklega vel staðsett jaðarhús miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir. Fallegt útsýni. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpshol, svefnherbergisgang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr/geymsla.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu, nýr forstofuskápur, flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými er björt og rúmgóð stofa/borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á suðvestur sólpall.
Eldhús: Í opnu rými er fallega innréttað eldhús með hvítri innréttingu, stór eyja, bakaraofn og örbylgjuofn, stórt spanhelluborð, innfelld vifta í lofti, parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Parketlagður gangur.
Hjónaherbergi: Stórt parketlagt hjónaherbergi með góðum fataskáp, útgengi út á baklóð.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með baðkari, upphengdu salerni og góðri hvítri innréttingu, stór spegill með innfeldum ljósum, fallegar gráar flísar á gólfi og veggjum.
Gestasnyrting: Með hvítri innréttingu, parket á gólfi.
Þvottahús: Stórt flísalagt þvottahús með hvítri innréttingu, skolvaskur, innan gengt inn í bílskúr.
Bílskúr: Innbyggður 49,2 fm. bílskúr, heitt og kalt vatn, hitastýring fyrir heita pottinn, fellihurð (stál) og rafdrifin bílskúrshurðaopnari, ný rafhleðslustöð, gönguhurð út á framhlið hússins, rúmgott geymsluloft, epoxy á gólfi.
Húsið: Húsið er timburhús sem byggt er árið 2006 og er innréttað að innan 2016. Innfelld lýsing er í lofti í eldhúsi, stofu, sjónvarpsholi og svefnherbergisgang. Gólfhiti er í húsinu. Nýbúið er að lagfæra þakið og mála.
Lóð: Gróinn frágengin lóð. Framan við húsið er suðvestur sólpallur með heitum potti, möl í innkeyrslu, trépallur framan við anddyri og á baklóð er gras.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected].
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.