Helgafell fasteignasala kynnir til sölu fallegt og talsvert endurnýjað, 4 herbergja, 99fm. einbýlishús á 825fm. lóð á skjólsælum stað við Klettahlíð 8 í Hveragerði.
Sjarmerandi einbýlishús
Mjög góð staðsetning.Eignin skiptist í forstofu, opið eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.Forstofa: Hefur verið stækkuð og endurbyggð. Flísar á gólfi.
Stofa: Opið rými við eldhús. Nýtt harðparket á gólfi.
Eldhús: Skipt var um eldhúsinnréttingu árið 2019 og hefur innréttingin verið uppfærð frá því. Innbyggð uppþvottavél og nýr ísskápur. Gaseldavél.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi. Útgengt út á suðvestur pall.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi.
Herbergi: Rúmgott 15fm. herbergi sem áður var geymsla. Hægt er að nýta sem svefnherbergi eða sem vinnurými. Harðparket á gólfi og útgengt út á pall.
Baðherbergi: Epoxíð á gólfi. Sturta með epoxíð á gólfi og uppá veggi. Ný innrétting, ljós, vaskur og blöndunartæki.
Þvottahús: Mjög rúmgott og ný flísalagt. Útgangur er úr þvottahúsinu út á lóðína.
Nýlegur pallur í kringum húsið. Fallegar tröppur frá bílastæði að húsinu.
Lóðin snýr í suðvestur.Húsið stendur í skjólsælli laut á 825fm. lóð sem býður upp á ýmsa möguleika.
Miðað við byggingarhlutfall lóðarinnar væri hægt að sækja um að stækkun uppí um 250fm. hjá Hveragerðisbæ.Nýlegar framkvæmdir að utan og að innan:- Allt málað.
- Nýtt vinyl parket frá Birgisson á stofu, eldhúsi og öllum herbergjum.
- Þvottahús málað og flísalagt.
- Eldhúsinnrétting: Nýir frontar, höldur og ný borðplata, nýr vaskur og blöndurnartæki, nýr ísskápur getur fylgt.
- Baðherbergi: Málað, ný innrétting, vaskur, blöndunartæki, spegill og ljós.
- Ný ljós í allt húsið.
- Rafmagn: Skipt um tengla og rofa.
- Nýjar hurðir í öllum svefnherbergjum.
- Nýr pallur og tröppur frá innkeyrslu.
- Nýjar rennur á allt húsið.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala ehf. - sími 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., sími 77 55 805 / email:
[email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.