Ísleifsbúð 22 815 Þorlákshöfn
Ísleifsbúð 22 , 815 Þorlákshöfn
94.900.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 193 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2019 95.500.000 81.550.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 193 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2019 95.500.000 81.550.000 0

*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***
*** OPIÐ HÚS SEM VERA ÁTTI ÞRIÐJUDAGINN 27.8. FELLUR ÞVÍ NIÐUR ***

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Ísleifsbúð 22, 815 Þorlákshöfn: Um er að ræða nýtt og vel skipulagt 5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 193,1 fm. þar af er íbúðarhluti 153 fm. og bílskúr 40,1 fm. Umhverfis húsið er gróinn garður með stórum suðvestur sólpall. Húsið er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.


Eignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofu / borðstofu, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, gangur / hol, baðherbergi, hjónabaðherbergi, þvottahús og bílskúr.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengt út á stóran suðvestur sólpall, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.  
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með fallegri innréttingu og stórri eyju með miklu skápaplássi, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð á eyju, bakaraofn, innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi og hjónabaðherbergi: Stórt hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er hjónasalerni, góð innrétting, sturta, upphengt salerni, útgengi út á sólpalla, flísalagt í hólf og gólf. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, opin fataskápur, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi, fataskápur, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 4: Rúmgott herbergi, fataskápur, parket á gólfi. 
Gangur / hol: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg innrétting, baðker, upphengt salerni, innfelld ljós í loft,  flísar á gólfi og við sturtu. 
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur, innangengt í bílskúr, lúga upp á geymsluloft, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 40,1 fm. bílskúr, heitt og kalt vatn, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, gönguhurð út á framhlið, ómálað gólf.
Húsið: Húsið er byggt 2019 og er úr timbri og klætt að utan með fínkornuðu steni,  gólfhiti er í húsinu. 
Lóð: Framan við húsið er möl í innkeyrslu og stétt að húsi, á norðurhlið er gras, á baklóð (suðvestur hlið hússins) er ca. 130 sólpallur og framan við hann er gras. Búið er að leggja rör út fyrir hita í í innkeyrslu og fyrir potti á sólpall, gert var ráð fyrir heitum potti í byggingu á sólpallinum. 

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  teignasala.is.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.