Þykkvaflöt 3B 820 Eyrarbakki
Þykkvaflöt 3B , 820 Eyrarbakki
67.900.000 Kr.
Tegund Parhús
StærÐ 139 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2022 0 43.600.000 0
Tegund Parhús
StærÐ 139 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2022 0 43.600.000 0

Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu nýtt 4ra herbergja parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr að Þykkvaflöt 3B Eyrarbakka. Eignin er samtals 139,1 fm. þar af er íbúðarhlutinn 108,5 fm. og bílskúr 30,6 fm.  Vel staðsett eign í grónu hverfi á Eyrarbakka. 

Húsið er selt eins og það er í dag á byggingarstigi 2 fokheld bygging og matsstigi 5 tilbúin til innréttinga. Er nánast komið á bst. 3 tilbúin til innréttingar og rúmlega það. Það sem búið er að gera umfram er m.a. baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, salerni, sturta, innfelld blöndunartæki og handklæðaofn, forstofa er flísalögð og hvítar innhurðir og eldvarnarhurð í bílskúr fylgja með. Verð 67.900.000 milljónir. 

Hægt er að fá húsið fullklárað á byggingarstigi 4 - fullgerð bygging. Verð 73.900.000 milljónir. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing:

* Húsið er á einni hæð, klætt að utan með gráu báruáli og aluzink járn er á þaki.
* Þakkantur klæddur með hvítri ál-klæðningu.
* Gluggar eru vandaðir, ál/tré gluggar. Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar. 
* Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og húsið því kynnt með svæðaskiptum gólfhita.
* Lóð er grófjöfnuð og möl í innkeyrslu. 
* Gert er ráð fyrir heitum potti í garði og ídráttarrör fyrir lagnir til staðar.
* Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir þrem svefnherbergjum, anddyri, stofu- borðstofu og eldhúsi í opnu rými, gangur, baðherbergi og þvottahúsi en úr því er innangengt út í bílskúr. Geymsluloft er ofan íbúðar (innangengt úr þvottahúsi). 
* Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, salerni, sturta, innfelld blöndunartæki og handklæðaofn. 
* Forstofa er flísalögð.
* Veggir og loft í bílskúr skilast ósparslað og ómálað. 
* Hvítar innhurðir og eldvarnarhurð í bílskúr fylgja með. 
* Netsnúrur í öllum rýmum. 
* Búið er að draga í fyrir hitastýringar í flest rými. Hitastillar fylgja ekki með.
* Ísskápur í eldhúsi fylgir með. 

Hér er um að ræða gott fjölskylduhús, vel staðsett, í nýju hverfi. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða [email protected].

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.