EINSTÖK íbúð í hjarta miðbæjarins við Bankastræti 6 - glæsileg íbúð á efstu hæð ásamt risi og um 60fm þaksvölum með útsýni yfir miðbæinn og Austurstræti.Sameiginlegur inngangur á 1. hæð þar sem gengið er um sameiginlegan stigagang upp á þriðju hæð. Á þriðju hæð er inngangur og þaðan upp sér teppalagðan stiga (sem er séreign) upp í íbúðina sjálfa.
Anddyri: flísar á gólfi ásamt fatahengi.
Stofa/Borðstofa: Harðparket á gólfi. Fallegt útsýni og útgengt á um 60fm. pall með góðu útsýni yfir Austurstræti og miðborgina.
Eldhús: Flísar á gólfi, tengi fyrir uppþvottavél/þvottavél. Flísar á mili efri og neðri hæðar. Gaseldavél með fimm hellum. Stór háfur fyrir ofan eldavélina.
Svefnherbergi: Sér hljóðeinangrað svefnherbergi, parket á gólfi og skápur.
Baðherbergi: Úr eldhúsi er gengið niður í baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, "walk-in" sturta, innbyggðir skápar. Handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Ris:Hringstigi liggur úr borðsstofu upp í risið. Samkvæmt teikningu var gert ráð fyrir geymslum í risinu en búið er að útbúa tvö svefnherbergi.
Parket á gólfi. Birt stærð í risi er 10fm., en gólfflötur er töluvert meiri þar sem stór hluti af risinu er undir súð.
Pallur: Stórar þaksvalir setja mikinn svip á þessa eign. Búið er að gera um 10fm. garðhýsi á svalirnar. Gott útsýni yfir miðbæinn af svölum. Nýlega voru þaksvalirnar lagaðar, þéttar og sett timbur gólfefni á þær ásamt gler handriði.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala, sími 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., sími 775 5805 /
[email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.