Kléberg 14 815 Þorlákshöfn
Kléberg 14 , 815 Þorlákshöfn
78.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 187 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 3 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1979 80.100.000 60.400.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 187 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 3 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1979 80.100.000 60.400.000 0

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Kléberg 14, 815 Þorlákshöfn: 

Bjarta og vel skipulagða 4 herbergja efri sérhæð ásamt bílskúr í steinsteyptu tvíbýlishúsi. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 187,8 fm. þ.a er íbúðahluti 142,2 fm. og bílskúr 45,6 fm. Eignin er einkar vel staðsett  í grónu hverfi með stórum skjólgóðum garði. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í  forstofu, stofu / borðstofa, sjónvarpshol / setustofa, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, og bílskúr. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa með hvítum fataskáp. 
Eldhús:  Rúmgott eldhús með góðri innréttingu, flísalagt.
Stofa / borðstofa:  Rúmgóð og björt stofa/borðstofa, aukin lofthæð, parket á gólfi.   
Sjónvarpshol / setustofa:  Rúmgóð með flísum á gólfi og fallegum arin. 
Hjónaherbergi:  Með hvítum fataskápum, parket á gólfi.  
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Hol / gangur: Með flísum á gólfi, úr holi er stigi niður í bílskúr.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum, falleg hvít innrétting, upphengt salerni, baðker og sturta, tengi fyrir handklæðaofn, spegill með ljósi. Búið er að endurnýja baðherbergið. 
Gestasalerni: Inn af forstofu er flísalögð gestasnyrting sem þarfnast endurbóta.
Þvottahús:  Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús. 
Bílskúrinn:  Á neðri hæð er rúmgóður 45,6 fm. bílskúr sem, hita og rafmagn, heitt og kalt vatn, gönguhurð út í innkeyrslu, bílskúrshurðaopnari, flísar á gólfi. 
Lóð: Stór 905,9  fm. sameiginleg gróin lóð, innkeyrsla er hellulögð, gengið er upp steyptar tröðður að útihurð, steyptur verönd á austur og suðurhlið.

Húsið hefur verið endurnýjað nokkuð undanfarin ár m.a. :
* Baðherbergi endurnýjað.
* Gólfefni endurnýjuð í flestum rýmum á efri hæð, að undanskildu þvottahúsi og baðherbergi.
* Innihurðar endurnýjaðar,  að undanskildu þvottahúsi og baðherbergi.
* Kaldavatns- og hitalagnir í eldhúsi, þvottahúsi og baði hafa verið endurnýjaðar. 
* Þrír gluggar hafa verið endurnýjaðir.
* Handklæðaofn fyrir baðherbergi fylgir með.
* Nýtt járn á þaki.
* Nýlegur þakkantur.

EINSTAKLEGA FALLEG EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.