Opið hús: 20. apríl 2024 kl. 13:30 til 14:00. Opið hús: Úlfarsbraut 80, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 20. apríl 2024 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Helgafell fasteignasala og Ragnheiður Árnadóttir löggiltur fasteignasali kynna vel skipulagða 126 fm, fjögurra herbergja endaíbúð á 3.hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu, búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíl. Svalir eru til vesturs og austurs. Húsinu hefur verið vel viðhaldið og eru engar fyrirhugaðar framkvæmdir. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús sem tengist stofu og sjónvarpsholi, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvotthús innan íbúðar, 6,6 fm geymsla í sameign. FÁ SENT SÖLUYFIRLTI STRAX Nánari lýsing: Forstofa: Góður skápur, flísar á gólfi. Stofa: Björt og rúmgóð með parket á gólfi, opið er inn í eldhús og sjónvarpshol. Útgengt á 10,4 fm svalir, flísalagðar, snúa til vesturs. Leyfi er til staðar fyrir yfirbyggingu á svölum. Eldhús : Með innréttingu frá Brúnas, tækjum frá AEG, innbyggð uppþvottavél, ísskápur fylgir ekki, flísar á gólfi. Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi, útgengi á 4,7 fm svalir til austurs. Svefnherbergi: Með fataskáp og parketi á gólfi. Svefnherbergi: Með fataskáp og parketi á gólfi. Baðherbergi : Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, baðkar og sturtuklefi. Þvottahús: Er innan íbúðar, flísalagt, með góðri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, góðar upphengdar snúrur. Geymsla: 6,6 fm í sameign, með borði, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Bílastæði: Í lokaðri bílageymslu, sett hefur verið upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl, sem leigist af Orku Náttúrunnar. Sér bílaplan fyrir íbúa Úlfasbraut 80 með 12 bílastæðum. Sameign : Er snyrtileg, lyfta er í húsinu, góð vagna-og hjólageymsla. Húsið : Er steinað og málað, sílanborið var á steininguna og málað 2021. Innréttingar: Skápar í eldhúsi, baði, forstofu og svefnherbergjum eru frá Brúnási. Rólegur stigagangur, engar íbúðir eru í útleigu, gott húsfélag sem hefur ávallt séð vel um viðhald. Falleg eign sem hefur fengið gott viðhald, á góðum stað í Úlfarsárdalnum. Íbúðin er staðsett innarlega í götunni, stutt í leik- og grunnskóla. Göngufæri er í sundlaug og á bókasafn. Nánari upplýsingar veitir: Ragnheiður Árnadóttir 697-6288 eða
[email protected] ---------------------------------------------------------- Heimasíða Helgafells fasteignasölu Facebook síða Helgafells - Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu - Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk. Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.